Bibb Dylan - Superhero Songwriter!!

þriðjudagur, nóvember 01, 2005

Battle of the Bloggers

Ég hef ekki notað axlabönd frá því þarna um daginn, ef einhver var að velta því fyrir sér.

Það er búið að vera nóg að gera hjá Bibbunni, minni alla á að Blóðberg, sem er frábærlega skemmtilegt, fyndið og átakanlegt leikrit, frumsýnt á laugardag í Loftkastalanum. Í aðalhlutverkum er Bibban og Frissan (ekki hafa hátt um það, hvorki leikstjórinn né leikhópurinn vita það...)
Versta er að ég er orðin veik, er með hausinn fullan af hori, þykir miður ef Greensleeves verður sungið heldur nefmælt á föstudag...:(

Síðan er keppnin Battle of the Bloggers að byrja. Þetta er keppni sem Bríet Nielsen ætlar að standa fyrir, og munu hangerladies keppa við the double j's.
spennóspennó!

mánudagur, október 24, 2005

Iceland Airwaves

Fór á Airwaves í fyrsta sinn, set rýni inn bráðum þegar ég nenni (þarf ekki að gera neitt núna, það er kvennafrídagur), fór samt dáldið í taugarnar á mér hversu lengi ég þurfti að bíða í röð. Missti næstum af José Gonzales ástmanni mínum, náði bara einu lagi, love will tear us apart, ætti frekar að vera "this line will tear us apart", sem hún reyndar gerði...hann var svo móðgaður að ég skyldi bara hafa séð eitt lag að hann hætti með mér eftir tónleikana... svo staða kvöld og helgarkærasta er aftur orðin laus, er byrjuð að taka við umsóknum, tek fram að þetta er EKKI rolluvinafélagið!!

Svo er um að gera að spenna sig upp, því eftir tæpar 2 vikur, nánar tiltekið 5 nóvember, verður hið stórkostlega leikrit "Blóðberg" frumsýnt, en þar sýnir Baby Jay stórkostlega takta sem þroskaheftrahatarinn Thelma. Auk þess spilar Fritz the Cat væna rollu sem ýmisskonar opinber og óopinber starfsmaður.

Kók í bauk og pulsa með lauk.

Deb
You are Deb and you could drink whole milk if you
wanted.


Which Napoleon Dynamite character are you?
brought to you by Quizilla

laugardagur, október 08, 2005

Axlarbönd

Ég var með axlarbönd í dag. Fannst það bara helvíti þægilegt. Kannski set ég þau bara aftur upp bráðum.

miðvikudagur, október 05, 2005

Life, oh life

bööööö!

Sit á Þjóðarbókhlöðunni og er að gera ritgerð um internetlýðræði.
Var að komast að því að ég er ekki jafn gáfuð og ég lít út fyrir að vera, setti því upp stærri gleraugu í morgun til að plata samnemendur mína...og vonandi kennarann líka:/
Málið er að þetta er bara voða erfitt, svo er ég búin að hlaða á mig allskyns öðrum utanskóla verkefnum, hef rosalega gaman að þeim og allt, þarf bara að skipuleggja mig og æfa einbeitinguna.
Ég og Elli Thor (je men!) erum að farað kenna vídjógerðar námskeið í Garðaskóla frá og með næstu viku!!!! Voða spennó, fórum áðan að hitta Gunna Rikk sem allir gamlir Garðskælingjar þekkja, og gengum út með nýja vinnu, VúHÚ!!!
Gengur samt eitthvað illa að fóta mig í TaeKwonDo, hef bara mætt á eina æfingu, svo draumar mínir um að líkjast Beatrice Kiddo eru að verða fjarlægari með hverjum deginum... jæja, þá verð ég bara einsog Turtles, drekk geislavirkan úrgang og öðlast ofurkraftakaratehæfileika!!!! dúdúdúdúdúdúdú TURTLES!!!
Sakna Sigríðar, og fyrir ykkur hin sem einnig sakna hennar, bendi ég á bloggið:
blog.central.is/sigridurasa

auk þess eru herðatrjáadömurnar með allhressa heimasíðu, en slóð sú er:
blog.central.is/hangerladies

jæja, ætli maður haldi ekki áfram að mauða í þessari ritgerð

goodbye earthlings, enjoy the silence
B-lo to the Mojo

laugardagur, september 17, 2005

Er ástin heimsk? (spoiler)

Mér finnst oftast voða rómó að horfa á myndir þar sem ástin sigrar að lokum, en stundum er þetta bara hálf fábjánalegt.
Ég var að horfa á myndina Win a Date with Tad Hamilton. Þar sem ung og sæt stelpa, leikin af Kate Bosworth (að sjálfsögðu...) sem vinnur stefnumót með drop dead fallegum gaur sem er ógeðslega svalur og fáranlega vel vaxinn- já, og svo er hann álíka frægur og Brad Pitt.
Hann fer að stíga í vænginn við hana eftir þetta stefnumót, og hún verður voða skotin, ekki skrýtið, en vinur hennar, leikin af litlum lúða sem er örugglega voða næs en alveg hræðilega leiðinlegur, verður ógeðslega abbó þvi hann er ástfanginn af henni en hefur aldrei haft taugar í að segja henni það og hún tók aldrei eftir því. Síðan er málum þannig háttað að Tad (hot gaurinn) fær hlutverk í stórmynd og biður þessa stelpu að koma með sér, en ÞÁ dettur vini hennar í hug að tjá henni eilífa ást sína. Þið vitið endinn, hún ákveður að fara með sæta gaurnum, en þegar hún er komin af stað í einkaþotu Tads á leið til Cali, hættir hún við og biður hann að snúa við svo hún og snúlli litli geta flutt til Texas og hafið hreindýraræktun.
Ég er ekki alveg svo fölsk að vera með einhverjum bara fyrir peninga og frægð, en hún var ógeðslega hrifin af sæta gaurnum, og hafði aldrei pælt í hinum gaurnum, en SAMT velur hún lúðann!!
Ég bý reyndar ekki svo vel að þurfa að velja á milli gaura, reyndar er allt steindautt sem stendur, eina valið er oftast milli þess að kúra með kettinum eða litla bróður mínum, en ef ég hefði þetta val.... Tékkið á þessum gaur, hann heitir Josh Duhamel...


Já, það er laugardagskvöld, og já, ég var heima með kettinum og mömmu minni.
Ég er að gera mjög spennandi ritgerð um lýðræði, annars væri ég að sjálfsögðu úti við opnun einhvers næturklúbbs eða á stefnumóti með Clive Owen einhverstaðar...bara svo það sé clear...

Peace out
Bibb Dylan

þriðjudagur, september 13, 2005

Samhugur

Það er ósjaldan sem maður hugsar með pirringi til samlanda sinna, eða blótar einhverjum í hljóði vegna einhvers sem fer í taugarnar á manni. Þrátt fyrir hversu erfitt það getur stundið verið að búa með fullt af öðrum maurum í þessu samfélagi koma atvik sem tengja okkur saman og náungakærleikurinn tekur völdin.
Ég lenti í tveim þannig atvikum áðan. Var á leið heim úr skólanum, klukkan farin að ganga 6 og ALLIR á leið heim úr vinnu. Fullt af fólki að keyra asnalega, svína fyrir og ein kella keyrði á miðjum veginum, tók tvær akreinar... og ég bölvaði henni í hljóði.
Svo breyttist þetta. Sjúkrabíll með blikkandi sírenur. Allt í einu var samhugur með öllum þessum bílstjórum um að sjúkrabíllinn kæmist leiðar sinnar sem fyrst-hratt og örugglega- allir keyrðu út í kant eða þangað sem þeir voru ekki fyrir.
Að öllu gríni og drama slepptu, þá er ekki frá því að maður tárist við svona atburð. Á stundum sem þessum finnur maður að það er ennþá samstaða um að hjálpa hver öðrum í þessu litla þjóðfélagi. Okkur er ekki sama.

Annars er ég opinberlega krýnd versti bloggari í alheiminum, en með því fylgir því miður ekki alheimsábyrgð frá Apple.
Það sem er hinsvegar að frétta er að ég er byrjuð í HÍ, í félagsfræði, og þykir það bara mjög skemmtilegt og áhugavert.
Ég er enn að taka við umsóknum um starf maka (hlutastarf, hægt að inna af hendi í frístundum og um helgar), enn sem komið er hefur einungis borist bréf frá manni að nafni Ketill sem er einbúi, en hann hélt að hann væri að sækja um styrk frá Sauðvinafélagi Íslands...er ég leiðrétti misskilninginn dró hann umsókn sína til baka, því miður fyrir mig, hann hljómaði einstaklega spennandi og lífsreyndur...

Fór á fund hjá Stúdentaleikhúsinu, ætla að reyna að troða mér þar inn.
Í dag kom ég svo við í gamla skólanum mínum og hitti alla gömlu kennarana mína, fékk svakalegt nostalgíukast, sumir kennarana voru orðnir meira einsog vinir en kennarar.

TAKIÐ EFTIR: Það er mánuður í útkomu fyrstu frumsömdu hljóðplötu Ragz Ramble, aka Ragnheiðar Gröndal, svo setjið ykkur í stellingar eyrnapúðarnir mínir...þið munið ekki verða fyrir vonbrigðum. Fregnir herma að Sólbert Einstein, hinn mikli eðlisfræðingur, hafi kompóserað coverið....

Fleira í tónlistarfréttum í dag:
Tónlisti vikunnar er komin, og lítur hann svona út:

1: New health rock -Tv On the Radio
2: Crosses -José Gonzales
3: Heartbeats -José Gonzales
4: My doorbell -White Stripes
5: Between the bars -Elliot Smith
6: Northern sky -Nick Drake
7: If you're looking for a way out -Tindersticks
8: Slow moves -José Gonzales
9: Leif Erikson -Interpol
10: Suzanne -Leonard Cohen

Check it!

kv. BB Buella

fimmtudagur, september 08, 2005

Lýðræði í Írak